Þemadagar voru haldnir í Brekkuskóla 5. og 6. maí. Yfirskrift þemadaganna að þessu sinni var umhverfið, sjálfbærni og mannúð. Hefðbundið bóknám var því lagt til hliðar og nemendur unnu að ýmsum samvinnuverkefnum.
Nemendur 7. – 10. bekkjar völdu á milli sköpunarvinnu, útivistar eða góðverka. Nemendur í góðverkahóp heimsóttu meðal annars dagdvalargesti á Hjúkrunarheimilinu Hlíð. Þar var spjallað, spilað, farið í göngutúra og leikfimi. Mátti vart á milli sjá hvor hópurinn hafði meira gagn og gaman af þessari heimsókn, unglingarnir eða eldri borgararnir.
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is